Klukkan

Kisi

28. júní 2007 klukkan 22:41

Datt í hug að skella inn einni stuttri hingað inn... þegar ég segi stuttri þá er það vegna þess að ég hef lítið sem ekkert að segja eða pæla...

Óðinn minn kom áðan og við grilluðum... lambakótilettur auðvita. Þær voru ekkert lítið góðar og smjör með kartöflu og grillaðir tómatar! ohh lovvitt!

WellWell.. ég er að vinna um helgina þannig væntanlega verður ekki mikið gert, en það er í lagi því mér finnst mjög fínt í nýju vinnunni minni. Hún er rosa þægileg og skemmtileg og það er gott að geta hjálpað fólki. Þó það væri ekkert verra að vera í fríi um helgar ;)

Vill minna á allar myndirnar sem ég er búin að vera að dunda mér heillengi við að setja á síðuna. Verði ykkur að góðu.

Hef þetta ekki lengra..

bleh!

kisi

Leyndó

24. júní 2007 klukkan 17:07
Berglind

Já leyndóið var að við ætluðum að gæsa hana Berglindi! og gekk það bara príðis vel. Við byrjuðum að fara á ættarmót á föstudaginn og ég fylgdi með því annas hefði það verið of mikið vesen í gæsuninni.. ættarmótið var... já.... ættarmót! Við spiluðum lúdó og trivial um kvöldið svo það ætti að segja alla söguna... en daginn eftir vöknuðum við snemma og gerðum okkur til svo við gætum komið Berglindi á óvart. Og hún var steinhissa! ohh ekkert smá gaman því við héldum sko að hana grunaði eitthvað en neinei hún hafði ekki hugmynd.
Við fórum svo til reykjavíkur þar sem hún fékk rosa gott nudd á hótel sögu á meðan biðum við í hljómskálagarðinum þar sem hennar beið svona piknik með frábærri ávaxtaostakörfu. Við sátum á teppum og gæddum okkur á ostum og ávöxtum og hráskinku og fínu rauðvíni í frábæra veðrinu sem var í gær. Við vorum að kafna og ég get ekki ímyndað mér hverni henni Berglindi leið í þessum flís Andrésínu búning sem hún þurti að vera með og að bera þunga skiltið sitt. En ég bíst ekki við öðru en að hún hafi skemmt sér rosa vel. Síðan fórum við í magadans og á leiðinni hittum við stráka sem voru að steggja vin sinn... greyið kúturinn... en magadansinn var rosalega skemmtilegur og við höfðum gaman af því að fíbblast í þessu.
Ég varð eftir í bænum vegna þess að ég ætlaði að hitta stelpurnar um kvöldið í fuerte reunion. Það var ógeðslega gaman! þið eruð æði stelpur! Svo komu strákarnir okkar... Viktor, Valdi og Freyr og það var rosalega gaman að fá þá. Við fórum á tramólínið og skemmtum okkur. Svo fórum við í bæinn og Valdimar sullaði á mig bjór. Svo biðum við í 45 mínútur í röðinni á hverfis og Begga og Jóhanna gáfust upp þannig ég fór ein inn og hitti þar Ernu og Hiördísi sem voru komnar inn. Ég hef skemmt mér betur í bænum, svo ég dreif mig bara heim. Annars var kvöldið í heild sinni rosalega skemmtilegt.

Þið eruð æði! bleh..

Spenntur

21. júní 2007 klukkan 11:57
Jæja eftir að vera búin að vinna síðan ég kom heim úr útskriftaferðinni verður tekið á því um helgina til að minnast ferðarinnar, as a matter of fact þá verður væntanlega reunion hjá okkur stelpunum á föstudaginn og við ætlum að hafa það næs. Svo á laugadaginn er ég að farað gera leyndó! Það er víst bannað að segja frá því ennþá en ég skal gefa ykkur update seinna um það.

Ég allavega get ekki beðið eftir helginni.

Ég ætla að setja nokkrar myndir í viðbót inn svo hef fönn!



 

Þjóðhátíð!

17. júní 2007 klukkan 20:46
Til hamingju með daginn elskurnar!

lkj

Ég er lítið búin að gera annað síðan ég kom heim en að vinna.. eða meira svona standa og horfa á aðra vinna og fylgjast með.. en þetta er allt að koma hjá mér. Ég er farin að fá að gera meira og horfa minna og ég er farin að þykja rosalega vænt um fólkið sem ég er að hugsa um. Ég hlakka svo til að vinna á þessum stað í sumar.

Rosa spes... bitin mín sem ég fékk úti sem voru fyrst bara litlir rauðir blettir og mér fannst ég ógó heppin að vera ekki ein af þessum sem líta út fyrir að vera með holdsveiki útaf bitum.. já einíveis... þau urðu alltíeinu bolgin og rauð og svona holdveikisbóluógeð í dag?! vá hvað þau eru ógeðsleg og mig klæjar endalaust! ég taldi þau áðan og þau eru 94 og kannski fleiri... (ég veit.. ég á mér ekkert líf og ég taldi þau) og ótrúlegt en satt þá fékk ég öll bitin mín síðustu þrjá dagana úti.

En einsog ég sagði þá hef ég lítið gert síðan ég kom heim svo ég hef ekkert að segja frá eða spekúlera í svo ég hef þetta bara stutt núna.

Þið eruð æði!

Bleh,
Anna Birna

Myndirnar komnar elskurnar

15. júní 2007 klukkan 21:39

Já myndirnar úr útskriftaferðinni eru komnar á netið og þær eru tæplega þrjúhundruð hvorki meira né minna! ég sleppti að setja alveg þrjuhundruð og eitthvað myndir.

En þegar þið skoðið myndirnar verðiði að setja gaurinn fyrir ofan upp svo þið sjáið textan sem ég var að vesenast að setja við hverja mynd. Takk elskurnar!

Anna Kveður
Svalur

?

Anna bloggari?

14. júní 2007 klukkan 19:21

Sælt veri fólkið, ég hef ákveðið að gera aðra tilraun til þess að verða bloggari. Þar sem ég er oft mjög utan við mig og gleymi mér oft í draumalandinu mínu... sem Óðinn minn var svo sætur að skíra LaLaland... þá hef ég ákveðið að kalla bloggið LaLaland!

Ég er nýkomin heim úr útskriftaferðinni okkar á Fuerteventura og New York þar á undan sem var bæði ekkert smá gaman. Mikið drama og fjör í útskriftaferðinni og ég ætla að reyna að setja inn myndirnar úr ferðunum fljótlega en ég er búin að vera í smá vandræðum með að finna góða og fljóta myndasíðu. Það er líka mjög mikilvægt að ég geti sett texta með myndunum og myndirnar meiga ekki vera lengi að uppfærast. Ef þú kannast við einhverja slíka síðu sem er ekki 123.is þá máttu endilega láta mig vita... danke

Ég ætla ekki að hafa fyrstu færsluna mikið lengri en þetta.
Takk fyrir mig,
Anna Birna

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Innskráningar kubbur