Klukkan

Að þæfa, förðun og spádómar?

04. október 2007 klukkan 13:43
Sælt veri fólkið!

Já, hvað hafa þessir þrír hlutir sameiginlegt? Að þæfa trefil, förðun og spádómar?
Tjah, þeir eiga það nebblilega sameiginlegt að á þemadögunum í skólanum mæti ég í allt þetta! HlakkHlakk! Þetta er rosalega spennandi alltsaman og skráði ég mig í þetta. Þemadagarnir eru svo sniðugir... það eru semsagt tveir dagar á önn þar sem nemendur koma með þema sem fólk skráir sig svo í í staðin fyrir að vera í skólanum. Ekkert lítið sniðugt! ég eimmitt heyrði um eitt þema sem hafði verið einhvetíma og það var að sofa út. Þá var semsagt bara hringt í fólk "ertu ekki örugglega sofandi?!" svo það fengi nú örugglega mætingu. En ég get nú varla beðið eftir þriðjudeginum og miðvikudeginum að fara að gera trefil, læra að farða mig og láta Siggu klíng kenna mér að spá Glottandi því ég er gersamlega klúless í þessu öllu saman... Ullandi

Ég ákvað nú að skella einni færlsu hérna inn þar sem ég var að komast að því að vinur minn er enn á lífi hann bara hefur verið of upptekinn í því að hanga til að láta vita af sér þessi elska. Svalur

En einsog væntanlega mörg ykkar vita þá eru jólin bara aaaalveg að koma! svo það er margt til að hlakka til núna... Ég hef nú séð tvær "jóla" auglýsingar og myrkrið er að skella á, og ég ætla að farað bretta upp ermar og bjóða þau velkomin með því að farað kaupa jólagjafir, skreyta og komast í jólaskap... ekki það að jólaskapið sé eitthvað vandamál... það fór aldrei Glottandi

Svo fer snjórinn bráðum að koma þó svo að útlitið sé nokkuð svart með það þar sem það er búið að rigna alveg stanslaust í heila eilfíð! Ég var að keyra í skólan í morgun.. í svona smá myrkri samt ekki, svona skrítinni birtu... og það var svona riiiiisa pollur á veginum... og gangstétt þar við hliðina... þar gekk þreyttur ferðalangur með stóra þunga tösku og í regngalla... ohh ég er með svo mikið samviskubit... auðvitað keyrði ég í pollinn og vatnið gusaðist yfir aumingja manneskjuna... ég er með svo mikið samviskubit... það er einsog ég hafi gert þetta viljandi til að hrekkja manneskjuna... greyið.... ferðalangur... ef þú lest þetta þá þykir mér svo fyrir þessu ég bara sá ekki pollinn!

En ég lendi nú í alveg furðulegu um daginn... ónefndur aðili sendir mér link á adultfriendfinder.com sem er svona einkamál.is nema bara með svona meira klámfengnari... Eníveis... í þessum link er notandi og mynd af honum.. myndin er af engum öðrum en litlu systur minni! mér brá nú heldur betur í brún... þarna stóð furðulegur texti um að hún væri sko til í heitt tjatt og eitthvað grrr... asnó dauðans... Það var ekkert athugavert við myndina.. bara venjuleg sæt mynd af henni... hún hét sko wetandready! Að sjálfsögðu er Edda ekki að skrá sig á svona... hún skrifar ekki svona góða ensku heldur! Herðu neinei... þá er bara fólk sem leitar uppi myndir af fallegum stelpum og setur á þessa síðu og þetta er örugglega bara eitthvað auglýsingatrikk hjá síðunni... ég sendi alveg brjáluð mail á stjórnendurna og þeir eru voða afsakandi og segja að þeir líti svona mjög alvarlegum augum. Ég er allavega ekki sátt við þetta! Allskonar perrar gætu fengið einhverjar hugmyndir!

Rakel greyið mitt er biluð aftur og maginn minn er í rusli. Ég hef ekki frá fleiru að segja í bili elskur!

Þú ert svo mikið æði!

Bleh reisins!
ó mæ god ertu ekki að grínast með myndina af systur þinni! ég hefði fengið hjartaáfall og veeeeel það :|

en annars líst mér vel á þau þema sem þú valdir þér :) þetta verður gaman!

en já jólin.. ég hugsa að ég bíði örlítið lengur og ég ætla rétt að vona að snjórinn geri það líka!! ég er ekki að nenna að skafa og hafa hjartað á milljón þegar ég keyri útaf kjánans hálku! neiii takk ;)
#1
04. október 2007 klukkan 14:56
hætt að blogga ?
#2
01. nóvember 2007 klukkan 20:09
er bloggið mitt eina sambandið sem þú hefur við mig þessa dagana? ;p
#3
02. nóvember 2007 klukkan 11:45
neinei alls ekki....
en ertu hætt að blogga? ;)
#4
23. nóvember 2007 klukkan 18:56
hvernig væri nú að blogga aðeins anna birna mín ??? hmm...
#5
28. nóvember 2007 klukkan 16:48

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Innskráningar kubbur