Klukkan

"Ég er innbrotsþjófur"

12. september 2007 klukkan 18:15

Hola!

Gærdagurinn var vægast sagt furðulegur dagur... ég pússaði á mér puttan í pússuvélinni í skólanum og það er ennþá sárt! Þetta er bara smá skeina en hún svíður heiftalega!

Síðan fór ég í ræktina en ég nennti ekki að gera neitt og læddist framhjá þjálfurunum svo þeir sæju mig ekki og fór bara í pottinn og læddist svo aftur út og framhjá þjálfurunum og enginn sá mig! Hlæjandi vúhú! ég er svo sníkí! ég bara þarf að fara tvisvar í viku í ræktina útaf skólanum...

Síðan fór ég uppá Sóleyjargötu að gera verkefni með mömmu, hún þurfti að fara og ég veit ekki hvort útidyrahurðin hafi verið læst en allavega... Svo er bankað og það var Maggi strákurinn sem á heima niðri og uppi. Hann segir mér að hann hafi verið niðri heima hjá sér og þá alltíeinu kemur einhver inn. Hann hélt að þetta væru einhverjir vinir hans að fokka í honum en svo sér hann að þetta var einhver gaur sem hann hafði aldrei séð áður! Maggi nottla segir æstur við hann "hver ert þú og hvað í anskotanum ertu að gera hérna!?" og hann svarar ferlega aulalega "Ég er innbrotsþjófur" Maggi sér að hann er með eitthvað í höndunum og spyr hvað það er og hann svarar alveg álíka aulalega "hnífur" þá verður Maggi reiður og segir honum að drulla sér út og rekur hann út með skottið á milli lappanna.
Maggi sagði mér að læsa og ég var svo hrædd því ef hann hefði svo komið þarna inn til okkar þá hefði ég ekki tekið eftir því! Þannig ég tók pínulítinn samt beittan hníf og labbaði skjálfandi um alla íbúðina svona einsog í disney teiknimyndunum, ég var svo kjánaleg Skömmustulegur Það var samt enginn þarna sem betur fer. Ég sé samt eftir að hafa ekki beðið Magga að rölta í gegn með mér því ég veit ekki hvernig ég hefði brugðist við ef hann hefði verið þarna heima! Hversu mikill aumingi hefur þessi gaur samt verið!? klukkan var sjö um kvöldið þegar allir eru heima að borða kvöldmat og þúst afhverju kom hann ekki bara með nafnspjald?! "Ég er innbrotsþjófur" Auli.
Ég samt skalf í allt gærkvöld af hræðslu eftir þetta.

En einsog ég hef sagt þá er alveg brjálað gaman í skólanum! Í dag var ég að logsjóða!! Ekkert líítið macho! zomg! Í hælunum mínum í þessu átfitti! ekkert lítið töff! Svalur

Það hefur líka verið spurning hvernig er að vera með mömmu í skólanum.. Það er æði! Það var samt smá áhyggjuefni hjá mér hvernig hún myndi nú vera við mig ef ég myndi leggjast fram á borðið eða eitthvað "Anna vertu vakandi!" "Anna afhverju ertu ekki að glósa?!" En neinei.... við vorum í tíma um daginn... og þarna var einhver nýr gaur sem við höfðum aldrei hitt áður... voðalega svona lubbalegur og kærulaus eitthvað og í frímínútunum lagði hann sig aðeins fram á borðið. Þegar kennarinn var kominn segir mamma með skelli ráðríku stjórnunar mömmu röddinni sinni "Jæja! Vakna!" og ítir í hann... ohhh þetta fannst fólkinu sem við þekktum ferlega sniðugt... mér fannst það ekki Glottandi jú kannski smá núna....

En núna þarf ég að farað skrifa... svona einsog þegar maður var í sex ára bekk... í skriftarbækurnar... ég er að læra að skrifa teikniskrift... og mér gengur alveg jafn illa að skrifa í svona línur og þegar ég var að læra að skrifa í sex ára bekk... En það er eins gott að farað klára þetta!

Takk fyrir mig elskurnar!

Anna Birna

P.S. ég er að spá í að setja nokkrar skondnar logsuðumyndir inn svo endilega kíkja á það líka!

 
Erna Ósk
djöfull ertu mikil gella í þessum galla, haha ja mjög smart að vera í háhæluðum skóm við ;)
#1
12. september 2007 klukkan 20:50
haha snilld, og talandi um langar færslur!
#2
14. september 2007 klukkan 17:32
Hey... ég hélt þú fýlaðir það... :p
#3
14. september 2007 klukkan 18:31
haha þú ert snillingur anna birna mín :)... takk fyrir gærkveldið... það var ekkert smá gaman :)
#4
14. september 2007 klukkan 19:50
hahaha ohh hvað þetta er fyndið með þennan innbrotsþjóf - þú veist, krípi en samt mjööög fyndið ;)

já og góðar myndir - tekur þig vel út í logsuðugallanum :)
#5
16. september 2007 klukkan 16:22
hætt að blogga ? :o
#6
03. október 2007 klukkan 01:04
ertu á lífi?! :O
#7
03. október 2007 klukkan 11:41

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Innskráningar kubbur