Klukkan

Would you like some tea darling?

05. ágúst 2007 klukkan 17:20

Hello Darlings!

já ég er bara heima um verslunarmannahelgina að vinna... Græða á því að vera heima um versló! Auk þess er þetta alltíkey ég ætla bara að fara á núparokk í kvöld... rosalega vinsæl og frábær útihátíð.. þar verða ég og mamma.. og hver veit nema einhverjir fleiri mæta ;) Vell ég er allavega ekki að kvarta ég er nebbla að verða búin að vinna fyrir sumarið og verð í fríi þar til skólinn byrjar aftur svo ég tek lokadjamm sumarsins út á því tímabili.

Þó svo að ég hafi ekki farið eitthvert yfir helgina þá átti ég alveg ágæta helgi.. Gunna kom á föstudaginn og við kíktum aðeins heim til Óskars litla í "partý" eða hvað þetta átti nú að vera... það var alveg skemmtilegt en við stoppuðum stutt, þar sem ég þurfti að mæta í vinnu daginn eftir. Svo í gærkvöldi var kveðjugrill hjá Heiðrúnu þar sem hún er að fara til útlanda sem au pair. Elsku dúllan... Við grilluðum og borðuðum og svo fengum við okkur ís með heimalagaðri súkkósósu! jömmjömm... og svo á eftir verður það núparokk! úhúhú..

Ég verð semsagt að skunda mér,

bleh kjútís!

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Innskráningar kubbur