Ađ ţćfa, förđun og spádómar?
Já, hvað hafa þessir þrír hlutir sameiginlegt? Að þæfa trefil, förðun og spádómar?
Tjah, þeir eiga það nebblilega sameiginlegt að á þemadögunum í skólanum mæti ég í allt þetta! HlakkHlakk! Þetta er rosalega spennandi alltsaman og skráði ég mig í þetta. Þemadagarnir eru svo sniðugir... það eru semsagt tveir dagar á önn þar sem nemendur koma með þema sem fólk skráir sig svo í í staðin fyrir að vera í skólanum. Ekkert lítið sniðugt! ég eimmitt heyrði um eitt þema sem hafði verið einhvetíma og það var að sofa út. Þá var semsagt bara hringt í fólk "ertu ekki örugglega sofandi?!" svo það fengi nú örugglega mætingu. En ég get nú varla beðið eftir þriðjudeginum og miðvikudeginum að fara að gera trefil, læra að farða mig og láta Siggu klíng kenna mér að spá
Ég ákvað nú að skella einni færlsu hérna inn þar sem ég var að komast að því að vinur minn er enn á lífi hann bara hefur verið of upptekinn í því að hanga til að láta vita af sér þessi elska.
En einsog væntanlega mörg ykkar vita þá eru jólin bara aaaalveg að koma! svo það er margt til að hlakka til núna... Ég hef nú séð tvær "jóla" auglýsingar og myrkrið er að skella á, og ég ætla að farað bretta upp ermar og bjóða þau velkomin með því að farað kaupa jólagjafir, skreyta og komast í jólaskap... ekki það að jólaskapið sé eitthvað vandamál... það fór aldrei
Svo fer snjórinn bráðum að koma þó svo að útlitið sé nokkuð svart með það þar sem það er búið að rigna alveg stanslaust í heila eilfíð! Ég var að keyra í skólan í morgun.. í svona smá myrkri samt ekki, svona skrítinni birtu... og það var svona riiiiisa pollur á veginum... og gangstétt þar við hliðina... þar gekk þreyttur ferðalangur með stóra þunga tösku og í regngalla... ohh ég er með svo mikið samviskubit... auðvitað keyrði ég í pollinn og vatnið gusaðist yfir aumingja manneskjuna... ég er með svo mikið samviskubit... það er einsog ég hafi gert þetta viljandi til að hrekkja manneskjuna... greyið.... ferðalangur... ef þú lest þetta þá þykir mér svo fyrir þessu ég bara sá ekki pollinn!
En ég lendi nú í alveg furðulegu um daginn... ónefndur aðili sendir mér link á adultfriendfinder.com sem er svona einkamál.is nema bara með svona meira klámfengnari... Eníveis... í þessum link er notandi og mynd af honum.. myndin er af engum öðrum en litlu systur minni! mér brá nú heldur betur í brún... þarna stóð furðulegur texti um að hún væri sko til í heitt tjatt og eitthvað grrr... asnó dauðans... Það var ekkert athugavert við myndina.. bara venjuleg sæt mynd af henni... hún hét sko wetandready! Að sjálfsögðu er Edda ekki að skrá sig á svona... hún skrifar ekki svona góða ensku heldur! Herðu neinei... þá er bara fólk sem leitar uppi myndir af fallegum stelpum og setur á þessa síðu og þetta er örugglega bara eitthvað auglýsingatrikk hjá síðunni... ég sendi alveg brjáluð mail á stjórnendurna og þeir eru voða afsakandi og segja að þeir líti svona mjög alvarlegum augum. Ég er allavega ekki sátt við þetta! Allskonar perrar gætu fengið einhverjar hugmyndir!
Rakel greyið mitt er biluð aftur og maginn minn er í rusli. Ég hef ekki frá fleiru að segja í bili elskur!
Þú ert svo mikið æði!
Bleh reisins!
"Ég er innbrotsţjófur"
Hola!
Gærdagurinn var vægast sagt furðulegur dagur... ég pússaði á mér puttan í pússuvélinni í skólanum og það er ennþá sárt! Þetta er bara smá skeina en hún svíður heiftalega!
Síðan fór ég í ræktina en ég nennti ekki að gera neitt og læddist framhjá þjálfurunum svo þeir sæju mig ekki og fór bara í pottinn og læddist svo aftur út og framhjá þjálfurunum og enginn sá mig!
vúhú! ég er svo sníkí! ég bara þarf að fara tvisvar í viku í ræktina útaf skólanum...
Síðan fór ég uppá Sóleyjargötu að gera verkefni með mömmu, hún þurfti að fara og ég veit ekki hvort útidyrahurðin hafi verið læst en allavega... Svo er bankað og það var Maggi strákurinn sem á heima niðri og uppi. Hann segir mér að hann hafi verið niðri heima hjá sér og þá alltíeinu kemur einhver inn. Hann hélt að þetta væru einhverjir vinir hans að fokka í honum en svo sér hann að þetta var einhver gaur sem hann hafði aldrei séð áður! Maggi nottla segir æstur við hann "hver ert þú og hvað í anskotanum ertu að gera hérna!?" og hann svarar ferlega aulalega "Ég er innbrotsþjófur" Maggi sér að hann er með eitthvað í höndunum og spyr hvað það er og hann svarar alveg álíka aulalega "hnífur" þá verður Maggi reiður og segir honum að drulla sér út og rekur hann út með skottið á milli lappanna.
Maggi sagði mér að læsa og ég var svo hrædd því ef hann hefði svo komið þarna inn til okkar þá hefði ég ekki tekið eftir því! Þannig ég tók pínulítinn samt beittan hníf og labbaði skjálfandi um alla íbúðina svona einsog í disney teiknimyndunum, ég var svo kjánaleg
Það var samt enginn þarna sem betur fer. Ég sé samt eftir að hafa ekki beðið Magga að rölta í gegn með mér því ég veit ekki hvernig ég hefði brugðist við ef hann hefði verið þarna heima! Hversu mikill aumingi hefur þessi gaur samt verið!? klukkan var sjö um kvöldið þegar allir eru heima að borða kvöldmat og þúst afhverju kom hann ekki bara með nafnspjald?! "Ég er innbrotsþjófur" Auli.
Ég samt skalf í allt gærkvöld af hræðslu eftir þetta.
En einsog ég hef sagt þá er alveg brjálað gaman í skólanum! Í dag var ég að logsjóða!! Ekkert líítið macho! zomg! Í hælunum mínum í þessu átfitti! ekkert lítið töff! ![]()
Það hefur líka verið spurning hvernig er að vera með mömmu í skólanum.. Það er æði! Það var samt smá áhyggjuefni hjá mér hvernig hún myndi nú vera við mig ef ég myndi leggjast fram á borðið eða eitthvað "Anna vertu vakandi!" "Anna afhverju ertu ekki að glósa?!" En neinei.... við vorum í tíma um daginn... og þarna var einhver nýr gaur sem við höfðum aldrei hitt áður... voðalega svona lubbalegur og kærulaus eitthvað og í frímínútunum lagði hann sig aðeins fram á borðið. Þegar kennarinn var kominn segir mamma með skelli ráðríku stjórnunar mömmu röddinni sinni "Jæja! Vakna!" og ítir í hann... ohhh þetta fannst fólkinu sem við þekktum ferlega sniðugt... mér fannst það ekki
jú kannski smá núna....
En núna þarf ég að farað skrifa... svona einsog þegar maður var í sex ára bekk... í skriftarbækurnar... ég er að læra að skrifa teikniskrift... og mér gengur alveg jafn illa að skrifa í svona línur og þegar ég var að læra að skrifa í sex ára bekk... En það er eins gott að farað klára þetta!
Takk fyrir mig elskurnar!
Anna Birna
P.S. ég er að spá í að setja nokkrar skondnar logsuðumyndir inn svo endilega kíkja á það líka!
Nýjar myyyndir!
En já þá er ég byrjuð í skólanum, Iðnskólanum í Hafnarfirði á Listnámsbraut með mömmu minni... Þetta er frábært! æm lovvíng itt.. Við erum bara í skemmtilegum áföngum.. hehe í einum þá þarf ég að læra svona skrift og við erum að gera svona einsog í sexára bekk með skriftarbækurnar.. skrifa a aftur og aftur og svo b... Þessi skóli er allavega frábær og hentar mér fullkomlega... reyndar mætti hann vera nær... en það er í lagi.
Já hín Hjördís átti afmæli á föstudaginn og hún hélt uppá það heima hjá sér í gær með pompi og prakt.... hvað þýðir það annars? hvað er pomp og prakt? En já það var virkilega gaman hjá okkur og kvöldið endaði að sjálfsögðu í miðbæ reykjavíkur. Ég tók alveg helling af myndum og ég er nýbúin að setja þær inn svo eeendilega kíkið á þær! voða skemmtó!
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna... Takk fyrir mig
Þið eruð æði!!
Skúúúlen!
Í dag er ég að farað byrja í skólanum! Ekkert smá spennt en líka smá stressuð ;) mamma er að koma líka í skólan og við erum báðar að fara á listabraut og það er ekkert líítið spennó! Við vorum að kaupa dótið sem við þurftum í skólan í gær og þetta er allt svona ekkað, lítill kústur, eitthvað sprey, málband, límstifti, skæri og trélitir (einsog þegar maður var í sex ára bekk! haha!) Og í skólanum verðum við bara að teikna og föndra og eitthvað skemmtilegt... Ég var að fá stundaskrána og þetta eru svona baaaara tímar sem maður hlakkaði svo til að fara í þegar maður var í grunnskóla og menntaskólanum.. En já... ég verð semsagt stelpan sem kom með mömmu sína í skólan... og heng alltaf með henni og vinkonu hennar sem er líka í skólanum. En það er bara skemmtilegt =D
Ég var að fá mér myspace með hjálp stelpnanna... þetta er rosalega fyndið dæmi... það eiga allir svona ákveðið mikið af vinum... og svo á maður einhvern hluta af því sem eru beeeestu vinir manns :p haha! Ég kann samt voðalega lítið á þetta en ég er að læra.. þetta er ekkert erfitt held ég sko... en þetta er tilgangslaust =D þegar ég spurði fólk til hvers myspace væri þá var fátt um svör... "þetta er bara svo ógeðslega tilgangslaus afþreying" Þetta heillaði mig lítið en ég lét til skarar skríða og ég er með myspacið:
En ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í bili!
Annan kveður!
Gay Pride
Herro,
Þá eru hinsegin dagar búnir og ég er svo að fýla þessa daga í tætlur að ef ég væri karlmaður þá væri ég pottó hommsi! ...figures... Við stelpurnar vorum að rúnta í bænum um daginn og þar var fullt af þessum elskum.. en þúst hvar voru allar lesbíurnar? kannski þær séu ekki eins áberandi... en hver veit...
Svo var það nottla gangan! Ég samt eila fór ekki á hana... en ég kíkti aðeins niður í bæ eftir það og hitti familíu elskurnar mínar.. En svo var komið að því að gera allt klárt fyrir kvöldið þar sem við stelpurnar ætluðum að hittast heima og njóta lífsins. Þær komu og við áttum bara nokkuð skemmtilegt kvöld saman.. svo komu Jakob, Óskar og Óskar í heimsókn og við fórum svo saman niður í bæ..
Ég ætla að setja myndirnar af kvöldinu inn eftir augnablik svo endielga kíkið á kjánaganginn í okkur.
Takk fyrir mig elskur!
Would you like some tea darling?
Hello Darlings!
já ég er bara heima um verslunarmannahelgina að vinna... Græða á því að vera heima um versló! Auk þess er þetta alltíkey ég ætla bara að fara á núparokk í kvöld... rosalega vinsæl og frábær útihátíð.. þar verða ég og mamma.. og hver veit nema einhverjir fleiri mæta ;) Vell ég er allavega ekki að kvarta ég er nebbla að verða búin að vinna fyrir sumarið og verð í fríi þar til skólinn byrjar aftur svo ég tek lokadjamm sumarsins út á því tímabili.
Þó svo að ég hafi ekki farið eitthvert yfir helgina þá átti ég alveg ágæta helgi.. Gunna kom á föstudaginn og við kíktum aðeins heim til Óskars litla í "partý" eða hvað þetta átti nú að vera... það var alveg skemmtilegt en við stoppuðum stutt, þar sem ég þurfti að mæta í vinnu daginn eftir. Svo í gærkvöldi var kveðjugrill hjá Heiðrúnu þar sem hún er að fara til útlanda sem au pair. Elsku dúllan... Við grilluðum og borðuðum og svo fengum við okkur ís með heimalagaðri súkkósósu! jömmjömm... og svo á eftir verður það núparokk! úhúhú..
Ég verð semsagt að skunda mér,
bleh kjútís!
HuxHux
Ég hef mikið verið að spekúlera... þúst... what's happening to the world?! Stelpur að bíta eyru af öðrum stelpum, maður að myrða annan mann útaf því konan sem vildi hann ekki var byrjuð að vera með öðrum manni, það er logið hræðilegum hlutum upp á fólk og svo hótað öllu illu viðkomandi og fjölskyldunni líka! Og svo get ég ekki ímyndað mér hvernig aumingja stelpunni líður sem var nýbúin að fá bílpróf og keyrir fyrir mótorhjól og maðurinn á því deyr... ég meina það þarf svo lítið til.. við höfum öll þúst keyrt og orðið smá mistök á.. og það er ferlegt að sjá þessa mótorhjólagaura... Ekki það að þetta hafi nokkuð verið honum að kenna...
Ég er líka búin að ergja mig svo ferlega útaf þessum með þennan ljóta hund og hvernig fólk getur komið svona illa fram við Helga.. hann myndi og gæti aldrei í lífinu gert neinu dýri þetta... ég myndi aftur á móti ekki hika við að sparka í þennan ljóta hárlausa hund... æji nei... ég er að ljúga... ég gæti það ekki... ever... frekar en nokkur annar.. bara soldið bitur, tíhí!
Ég veit að þessi færsla er ferlega þunglyndislega... en lífið er fullt af fallegum og góðum hlutum líka... rainbows, puppies, butterflies, flowers and unicorns.. og leyfið mér bara að halda að það síðast nefnda sér í alvörunni ;) það er það í Lalalandi!
Anna í LaLaLandi!
Jóga?
Ferðin var virkilega skemmtileg. Við grilluðum, dönsuðum, klessuðumst, spáðum, drápum geitunga, fíbbluðumst, spiluðum, trúnóuðum, kúrðum, jóguðum, hlógum og skemmtum okkur konunglega. Ég held að myndirnar lýsa helginni betur en nokkur orð.
Ég ætla samt ekki að hafa þetta mikið lengri færslu.
Tak for mig!
Annsla
Fađmlag
Ég er ennþá lasin... ég er búin að vera það í meira en tvær vikur! ég er reyndar ekki mállaus lengur... en ég er með viðbjóðslegasta hóstan í heiminum og svo er ég að byrja að fá kvef núna fyrst... hræðilega leiðilegt...
En ég hef nú frá aðeins meira að segja núna heldur en kvefinu mínu.. samt ekkert rosalega miklu en ég hef þó eitthvað!
Brúðkaupið þeirra Berglindar og Davíðs var í gær og var það virkilega skemmtilegt. Þau voru með svona þjóðlegt þema og þau voru í þjóðbúningum og svona flottheit. Ég fékk lánuð peysuföt, svuntan og slaufan voru með bleiku blóma mynstri og finnst mér það virkilega áhugavert og öðruvísi. Leifur sem var með mér í bekk í grunnskóla var að taka myndir og það var gaman að hitta kappan eftir svona langan tíma.
Ég fór í bæinn með Elfu systur hennar Gunnu og ég bað þau að skutla mér bara í breiðholtið til Beggu því það var í leiðinni fyrir þau. Rétt áður en átti að beygja til að komast til Beggu þá sprakk á dekkinu hjá þeim. Það voru allir klæddir í sínu fínasta. Elfa í skautbúningi og Einar maðurinn hennar í þjóðbúning. Þetta var ferlega kjánalegt og þau greyin ætluðu að reyna að ná í leigubíl þarna, klukkan hálf eitt og það gekk ekkert rosalega vel.
Ég reyndar fór aðeins með stelpunum í bæinn og írunum hennar Jóhönnu, þeir voru sotlar dúllur greyin. Það gerðist voðalega lítið í bænum. Bara soldið skrautlegt kvöld einsog þau eru nú yfirleitt kvöldin sem maður gerir eitthvað.
Í dag fór ég í göngutúr uppá fjall fyrir aftan heilsuhælið þar sem ég og mamma löbbuðum alltaf þegar ég var lítil. Það var yndislegt og ég kvet alla til að gera eitthvað svona, fara út í náttúruna og njóta hennar. Ég var þarna í svona fjóra og hálfan tíma í dag.
En ég ætla að hafa þetta bara nóg í bili, gefðu sjálfum/ri þér þétt, fast og gott faðmlag frá mér!
Bleehh!
Mállaus!
Nú er ég ný komin úr tveggja daga dvöl hjá henni Þórný frænku og datt í hug að fyrst ég hef meira að segja frá heldur en síðast þegar ég bloggaði að skella einni færslu inn á LaLalandið mitt.
Ég er búin að vera með þessa rosalegu hálsbólgu síðustu fjóra daga og það heyrist lítið sem ekkert í mér. Það er rosalega skemmtilegt að svara símanum og fólk hikar og spyr "er Anna þarna?" eða "er þetta Anna?" Þúst meira að segja minn eigin bróðir og pabbi minn hélt ég væri að tala með helíum. En svo var ekki... ég er bara búin að missa röddina svo einfalt er það.
Einsog ég sagði þá er ég búin að vera hjá Þórnýju síðustu tvo daga og hefur það verið rosalega næs. Ég er bara búin að vera að kúra og horfa á Hallmark channel (og ég skammast mín ekkert fyrir það) og svo fara út að borða tvisvar því við nenntum ekki að elda og hitta Kára bróður, Benný og Hörð elskuna mína. Hann er sætastur! Hann er tveggja og kominn á mótþróaskeiðið sem lýsir sér þannig að hann segir nei við öllu nema hann þurfi nauðsynlega að segja já. Svo hitti ég líka Lindu frænku og við keyptum okkur þrjá hringa hvor af einhverri konu í bankanum.
Núna fara Nonni og Elísabet að fara að koma heim loksins endanlega. Ég get varla beðið eftir að fá þessar elskur heim svo að fjölskylduboðin geta farið að vera einsog þau eiga að vera. Þegar þau fóru man ég að mér fannst alltaf hálf tómlegt í fjölskylduboðunum, en sem betur fer fer þetta að verða einsog það á að vera!
Núna þarf ég samt að fara að skunda í vinnunna mína.
Þar til næst!
Anna Panna

ohh, væri alveg til í að spóla til baka og upplifa ferðina aftur og aftur... haa... stelpur....